Nóg að gera...
Jæja þar sem það er farið að rukka mann um blogg strax aftur þá gerir maður það að sjálfsögðu. Núna er fyrsta vinnuvikan byrjuð síðan ég kom. Í gær þá ætlaði ég að dúlla mér svo mikið en þá varð eldri stelpan veik og því þurfti ég að vera inni allan daginn svo að ég tók ekkert rölt um hverfið né fór niðrí miðbæ hér í Sollentuna. Ég tók göngutúrinn minn bara áðan og labbaði hérna uppí skóg þar sem ég ætlaði að gá hvort væri ekki einhver gúrmei hlaupaleið, svo byrjaði ég nú að labba og leit endalaust til hægri og vinstri og var voða stressuð eitthvað því ég bjóst bara við því að það kæmi úlfur að éta mig í hverju skrefi haha ...en það gerðist nú ekki og hér sit ég og skrifa þessa færslu
Hinsvegar þegar ég var búin að labba smá hring þá fór ég að snúa mér í hringi og reyna að hugsa í hvaða átt húsið mitt væri en neinei áður en ég vissi af þá var ég bara búin að týna öllum áttum og vissi varla í hvorn fótinn ég átti að stíga. En þetta reddaðist nú allt saman og ég fann þetta fyrir rest og endaði hérna rétt fyrir framan húsið svo ég ákvað að fara bara aftur uppí skóg og labba meira til að reyna ná einhverjum áttum ...svo að nú styttist í að ég geti farið út að skokka svona hvað úr hverju !!! 
...Finnst ég tiltölulega eðlileg að ætla fara bara og skokka en á stígunum þarna út um allt var allskonar fólk að gera eitthvað bjánalegt eins og t.d. mætti ég einum karli tvisvar eða eitthvað á sama hringnum en þá var hann í einhverri ægilegra göngu með stafi og svona gönguskíðagleraugu.Það vantaði bara að hann væri með eeeldrautt hár og héti Knolle Tottesen eða eitthvað þvíumlíkt ( eins og í Ég var einu sinni Nörd )
Fyrsta fótboltaæfingin var í gær og þar var ég náttúrlega alveg eins og kjáni. Það var bara innanhúsæfing í gær á einhverju glerhörðu gólfi sem var sko harðari en allt sem hart er. En ég var nú bara sniðug og sagði þjálfaranum að ég væri útileikmaður haha ekki nenni ég að vera í marki í svona. Það gekk nú samt ekkert frábærlega en það gekk svosem fínt. Pínu undarlegt að sparka í bolta þegar maður hefur ekki gert það í maaaarga mánuði en það verður nú vonandi fljótt að koma. Æfingin var semsagt í tvo tíma frá 7-9 og svo spiluðum við í endann og þjálfarinn sem heitir Anton ( eina nafnið sem ég lærði í gær) spurði hvort ég hefði einhvertíma spilað innanhús bolta og ég sagði bara nei, svo fattaði ég ekki fyrr en eftir á hvað hann hefði verið að spurja mig um haha því hann var svo hissa á að ég hefði aldrei spilað innanhúsbolta. En auðvitað hef ég gert það oft og mörgum sinnum en heví skemmtilegt að spila sig að svona kjána bara og þykjast ekkert kunna en vera svo bara sjúklega klár !
Kann´etta....En nú þarf ég að skreppa og skutlast eitthvert niðrí bæ.
Þangað til næst..
-Petra som prätar inte Svenska :)
Annars þá er ég búin að gera myndaalbúm sem er hérna til vinstri. Tók myndavélina með mér út áðan og ætlaði að mynda en hún varð batteríslaus eftir fyrstu myndina mjööög típískt. En annars skelli ég þeim þarna í albúmið þegar ég tek einhverjar ... Svo endilega tékkið á þeim. Bara komnar nokkrar af herberginu og húsinu að utan.
Svíþjóð
Halló...
Jæja þá er ég búin að opna bloggsíðuna mína aftur og ég ætla reyna blogga eitthvað meðan ég er hérna úti í Svíþjóð. Ég kom á föstudaginn og þá kom Guðjón að sækja mig á Arlanda..svo fór föstudagurinn aðallega bara í það að skoða húsið og koma mér fyrir. En þetta er ágætis hús sem við erum í, það er 3 hæða og á efstu hæðinni eru herbergin þeirra og miðhæðinni er eldhús og betri stofan og vinnuherbergi og svona..og svo á neðstu hæðinni er sjónvarpsholið og svo herbergið mitt. Er í fínasta herbergi og með allt til staðar, sjónvarp og græjur og tölvu og svoleiðis og svo er ég með aukasvefnsófa svo að það er nóg gistipláss fyrir heimsóknir
Í garðinum er svo sundlaug og kósýheit, en hún er ekki notuð strax heldur bara þegar fer að hlýna úti, svona ca apríl til ágúst/september. Svo eru allskonar ávaxtatré í garðinum, perutré og epla og berjatré og svona svo að það er ábyggilega skemmtilegt á sumrin...Svo eru tvö gæludýr á heimilinu eða svona yngstu börnin myndi ég segja, það er kanínan Viktor og hamsturinn Kalli...voða skemmtilegt !
Annars er bara allt fínt að frétta var að koma heim af jólaballi, já mjög undarlegt að hafa jólaball 11.janúar en svona er þetta víst hérna en það var ágætt fengum einhvejrar sænskar kökur og svona og svo dönsuðum við í kringum jólatré og sungum sænsk jólalög, nema ég söng voða lítið...
Í gær tók ég lestina niðrí miðbæ og eyddi deginum þar í einhverju bæjarrölti. Var mjög ánægð með mig að geta farið svona ein niðrí bæ og í lestina og svona því maður er smá stressaður fyrst..en það var bara gaman. Leist reyndar ekkert á blikuna þegar ég kom í bæinn þá voru bara lögreglubílar út um aaaallt og komu svona 5 löggur úr hverjum bíl og röðuðu sér út um allt og bærinn troðfullur af fólki á einu torgi hérna sem heitir Sergelstorg en það er svona dópistatorgið hehe, en svo komst ég að því að það væru einhver mótmæli í gangi í sambandi við þarna Gasa og eitthvað í Palestínu eða hvar þetta nú er. Tók einmitt einhverjar myndir af því, mjög mikill túristi. 
Annars er ég að fara í stöðupróf í sænsku á miðvikudaginn til að sjá í hvaða hóp ég lendi og svo fer ég í sænskutíma tvisvar í viku núna í nokkrar vikur. Svo hringdi þjálfarinn hérna í gær og ég fer á fyrstu fótboltaæfinguna annaðkvöld, verður gaman að sjá hvort maður geti hlaupið eitthvað.
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, bara láta vita af mér og opna bloggið. Ætlaði að vera búin að taka myndir af húsinu og svona hverfinu en þetta er voða krúttlegt allt saman hérna í kring, en ég hugsa að ég taki göngutúr á morgun um hverfið og skoði mig aðeins um á meðan allir eru farnir að vinna og í skólann en það hefur ekki enn gefst tími til þess svo að það koma myndir fljótlega
Annars kveð ég bara héðan frá Stokkhólmi í bili
Hejdå
p.s. var að búa mér til skype svo ef að einhver er með skype þá er nafnið mitt petralind88.
Ítalía here I come..

- PetraLind
"Cause you had a bad day"
Lýsandi dæmi fyrir daginn í dag:: Mæting í stærðfræðitíma 8:20, greit svaf yfir mig og kom of seint. Allt bílastæðið við MK fullt svo ég þurfti að planta kagganum á einhverjum gúrmei stað hjá einhverju íbúðarhúsi rétt hjá skólanum. Eftir að ég skildi ekki staf í stærðfræðinni þá var skellt sér í þýskutíma, rífandi stemmning þar alveg..... Nei okei eða ekki. Tímaritun. Greit og bannað að nota tölvu(svindlið) svo að maður varð að gjöra svo vel að taka upp blað og blýant og koma einhverjum orðum úr tungumáli djöfulsins á blað. Flottur dagur. En einhvernvegin er hann ekki búinn. Hádegishlé og Petra ætlar að fara og fá sér að borða, nei flott ekki hægt að borga með korti í skólabakaríinu svo það var um að gera að skella sér í hraðbanka og taka út pening. Nei það var eitthvað að klikka líka þar sem ég hafði ekki hugmynd um hvað pin númerið er á kortinu mínu. Endaði á því að fá lánað hjá Steinunni hetju sem sá til þess að ég hefði ekki dáið úr hungri.
Svo kom enskutími. Í þeim tíma hef ég sjaldan verið jafn dugleg að læra og í dag þar sem ég átti að búa til tónlistar-fyrirlestur um einhverja hljómsveit. Þennan fyrirlestur á ég svo að halda eftir nokkra daga ásamt Laubbu Bjö. Þegar við vorum búnar að sitja í 75 mínútur við tölvuna að hlusta á þá annars ágætu hljómsveit Coldplay ( sem við skrifuðum um) og gera fyrirlesturinn klárann þá slökknaði talvan á einhvern óskiljanlegan hátt á sér. Þegar við kveiktum aftur á henni þá var fyrirlesturinn horfinn! Og hefur ekki fundist síðan...Greit !
Þegar allt kemur til alls þá hefur þessi dagur verið hrikalegur.
Tveir dagar sem ættu að vera lausir við ótta og kvíða.
_____________________________________
Annar er gærdagurinn...
Með sínum mistökum og áhyggjum,
göllum og glappaskotum,
sínum sársauka og kvölum.
Gærdagurinn er að eilífu liðinn og kominn úr okkar höndum.
Allir peningar heimsins geta ekki gefið okkur gærdaginn aftur.
Við getum ekki tekið til baka það sem við gerðum í gær,
né getum við þurrkað út eitt einasta orð sem við sögðum...
Gærdagurinn er liðinn !!
_________________
Hinn dagurinn sem við ættum ekki að hafa áhyggjur af er morgundagurinn,
með sínu ómögulega andstreymi, áhyggjum,
sínum vongóðu fyrirheitum og lélegu framkvæmd.
Morgundagurinn er utan okkar seilingar.
Sól morgundagsins mun rísa
annaðhvort í heiðskíru eða bak við skýjabakka,
en hún mun rísa.
Og þegar hún gerir það,
eigum við ekkert undir deginum,
því hann er enn ófæddur.
________________________________________
Því er aðeins einn dagur eftir " Í dag".
Allir geta barist í orrustum eins dags.
Það er aðeins þegar við bætum við áhyggjum gærdagsins
og morgundagsins sem við brotnum saman.
Það er ekki upplifun dagsins í dag sem skapraunar fólki
það er söknuðurinn eftir einhverju sem gerðist í gær
og kvíðinn yfir því hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Lifum því fyrir einn dag í einu.
Eftir svekk og pirring þessa dags þá hef ég nú samt sætt mig við það að þessi dagur í dag er bara hluti af mínu lífi. Á morgun verð ég búin að gleyma honum vona ég. ( Nema þegar ég þarf að fara byrja aftur á fyrirlestrinum sem ég VAR búin að gera, þá mun ég eflaust rifja þennan dag upp ) Segðu svo að það sé ekki gaman að þessu
Elskaðu lífið - Það elskar þig eflaust á móti einhvern daginn !!
-Petra Lind
Mætt í raunveruleikann
Ég er samt með fína stundatöflu, eða svona þokkalega. Ætla reyna útskrifast í vor frá VA,skólanum á Nesk því ég get ekki útskrifast úr MK fyrr en næsta haust því ég fékk ekki allt metið þegar ég skipti úr VMA yfir í MK..en það er svosem í lagi ef ég skít uppá bak í vor þá sæki ég bara hvítu stúdentahúfuna í desember
Fótboltinn er svo að detta á fullt skrið núna, yndisleg hlaupa og lyftingaæfing í gær leið og ég kom að austan, svo var leikur áðan og svo píp-test á morgun! Ég hef ekki yfir neinu að kvarta í lífinu þessa stundina...hehe! Fínt að fara hlaupa jólasteikurnar af sér og kannski makkintosh-dollurnar ? Nehh maður spyr sig ! Svo var líka nýr þjálfari að byrja þjálfa okkur hún Vanda en þar sem ég var búin að vera í jólafríi síðan 10 des þá hitti ég hana ekkert fyrr en bara í gær. Það virkar ágætlega á mig bara, þó erfitt sé að breyta til ....
Annars er nú ekki mikið að ske held ég.. veit ekki afhverju ég var að blogga, langaði bara alltíeinu til þess :) Áhugavert !
Ég held ég fari að detta í lögn bara núna! Sé ykkur síðar kæru lesendur
Hei, þú lest = Þú kvittar
-PetraLind
Ársuppgjör
Þá er árið 2008 gengið í garð sem þýðir að flestir eru búnir að setjast niður og setja sér ný markmið fyrir nýja árið eða þá að strengja áramótaheit sem yfirleitt endast ekki lengur en út janúar hjá svona 90 % ...
En alltaf er þetta þó jafn skemmtilegur tími þar sem allt og allir eru svo jákvæðir eitthvað. Enda ekki leiðinlegt að byrja á nýju ári, takast á við nýjar áskoranir og ný tækifæri..Svo þegar upp er staðið verður gaman að sjá hvernig tókst til. Ég allavega ætla óska öllum þeim sem lesa þessa síðu gleðilegs árs og vonandi á það eftir að verða gæfuríkt hjá ykkur öllum, og takk fyrir allt gamalt og gott !
Árið 2007 hjá mér persónulega var nú bara alveg ágætt þegar upp er staðið! Ég man að síðustu jól þá var ég örugglega ekki hamingjusamasta manneskja í heimi því þá má segja að nokkurskonar tímamót voru hjá mér. Ég var að flytja suður og skipta um lið og takast á við svo margt nýtt. Tilfinningin þá var ekkert sú besta í heimi og ég var pínu stressuð að breyta svona mikið til og upplifa eitthvað allt annað en ég var vön. En þegar ég lít tilbaka þá sé ég ekki eftir neinu því ég hef nú þegar kynnst mörgu nýju og skemmtilegu fólki sem reynist mér alltaf vel, ég er í frábæru liði og er bara búin að hafa það býsna gott.
Það sem stóð kannski hvað mest uppúr þá held ég að það hafi verið það að taka þátt í öllum landsliðsverkefnunum með U19, í Mars fórum við til Spánar í æfinga og keppnis ferð á stað sem heitir La Manga í viku og var það geðveik ferð í alla staði þar sem við vorum að æfa við topp aðstæður, spiluðum leiki við Ítalíu, England og Danmörku og lágum þess á milli í sólinni og höfðum það gott. Svo um miðjan Júní fórum við til Svíþjóðar í nokkra daga og spiluðum einn vináttuleik við Svíþjóð sem var geðveikt. Ég held að það sé einn eftirminnilegasti leikurinn því umgjörðin í kringum hann var mögnuð og fullt af áhorfendum, og ekki skemmdi það nú fyrir að vinna þessa svía 1-0. Svo í enda júlí var Evrópukeppnin í U19 haldin hér á Íslandi og lifðum við þá bara eins og drottningar á Hóteli í viku og svona, voða gaman. Kepptum svo gegn sterkustu liðum Evrópu, en Þýskaland,Noregur og Danmörk voru með okkur í riðli. Svona eftirá þá finnst mér eins og við hefðum átt að gera betur en þetta var skemmtileg upplifun og eitthvað sem maður gleymir seint![]()
Í sumar byrjaði ég að vinna í bæjarvinnunni í Kópavogi svona fyrstu 2 eða 3 vikurnar en færði mig síðan yfir á Kópavogsvöll og var þar í allt sumar að gera allskonar þannig vinnu, slá og vinna á leikjum og svona með skemmtilegu fólki! Maður kvartar ekkert yfir því og ég reikna með að vera bara aftur þar núna í sumar.
Svo með haustinu byrjaði skólinn aftur og er það bara búið að vera fínt. Stefni á að klára stúdentinn núna í vor svo að það eru ekkert nema spennandi tímar framundan! En eins og með allt annað þá var síðasta ár bæði upp og ofan en sem betur fer endar það yfirleitt þannig að góðu stundirnar eru fleiri en þær slæmu !
Núna er ég bara búin að vera heima á Neskaupstað síðan 10. desember og er búin að hafa það ljómandi gott hér í faðmi fjölskyldunnar og éta á mig gat hvað eftir annað ásamt því að gera alla þessa skemmtilegu hluti sem tengjast jólunum! Sólahringurinn er búin að snúast algjörlega við síðustu daga en nú er að koma tími til að breyta því og fara detta inní raunveruleikann svona hvað úr hverju. Fer suður eftir nokkra daga og svo byrjar skólinn 8 jan aftur..
Svo fer ég til Ítalíu 26 janúar í Skíðaferð með fjölskyldunni og Rögnu..erum að fara til Madonna Di Campiglio sem er mesta snilld í heimi, fór þangað árið 2001 og get ekki beðið eftir að fara út núna. Það styttist og styttist í það, jíhaaa![]()
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ætla skella inn nokkrum myndum hérna frá síðasta ári svona í tilefni dagsins. Svo er meiningin að setja bloggið á fullt aftur en þar sem síðasta blogg kom 20. nóvember þá reikna ég ekki með að margir séu fastagestir hér ennþá. En þið skiljið eftir ykkur eins og eitt komment hérna eftir þennan lestur, ég bið ekki um mikið meira!![]()

Íslandsmeistarar í 2.flokki 2007. Þetta var svo gaman :)
Þessi er síðan í Maí 2007 þegar ég var í heimsókn á Akureyri, skelltum okkur aðeins út á lífið þá! :)
Eftir sigurleikinn gegn Svíþjóð í Júní..honum var vel fagnað :)
Þessi hérna er must. Dragtin fína sem var skylda að mæta í leiki á EM. HAHA :)
Svo tók ég einmitt þátt í Ungfrú Ísland ! Nei okei þetta var hópferð í bláa lónið með landsliðinu...svoldi fegurðarkeppna -legt :)
Ég, Jónína og Salóme á Buff-balli núna 29. des
Piparkökubaksturinn er lika mjög mikilvægur á Jólunum :)
Ég og Arnar litli sæti frændi minn á Aðfangadag :)
Jájá ég og Andri alltaf jafn sæt..Með pósið á hreinu ;)
En jæja segi þetta fínt hér...látið í ykkur heyra takk! ![]()
Kv.Petra
Hva, eru öll ljós kveikt og engin heima eða ?
Held það sé við hæfi að byrja þetta blogg á jááááá fínt já sæll sko ! :) Er búin að eyða dágóðum tíma af lífi mínu síðustu daga í að horfa á Næturvaktina. Ég held ég þurfi ekkert að fara mörgum orðum um það hversu mikil SNILLD þessir þættir eru !! Ég held ég sé búin að horfa á sömu klippurnar á youtube fram og aftur og alltaf hlæ ég jafn mikið !! Kannski eitt skýrasta dæmið um það hversu einföld persóna ég er...![]()
Ástæðan samt fyrir því að ég loggaði mig inná bloggar svæðið mitt er það að ég þurfti að forvitnast hversu margir væru búnir að vera heimsækja síðuna mína frá síðasta bloggi og bara síðustu daga. Það má segja að þær tölur hafi að mörgu leiti komið mér nokkuð á óvart, hvernig nennið þið að vera koma alltaf hingað inn þegar þið vitið að það er ekkert blogg á leiðinni ?? hehe! nei okei, núna eftir þetta innlit kemur bros á mörg andlitin fyrst ég er loksins að blogga. Gott ég get glatt einhvern .. Best að ég reyni að standa undir væntingum og finni eitthvað til þess að skrifa um.
Líf mitt hefur gengið upp og ofan síðan síðast. Farið að styttast í jólahátíðina! Mikið rosalega er ég glöð með það...ég man þegar ég setti inn linkinn hérna vinstra megin á síðunni " Dagar í jólin " að þá voru þeir alveg hundrað og eitthvað, nú eru bara 34 dagar ! Ég er komin með jólamúsíkina í Itunes-ið mitt, svo er komið jólaöl, jólanammi, jólamjólk og jólajógúrt í búðiirnar, tala nú ekki um alla mandarínu-kassana sem liggja hér og þar þegar maður fer að versla! Ég er virkilega að meta þetta og er að hugsa um að fara splæsa í eitt stykki svona mandarínukassa...það er engin jólastemmning ef maður fær engar mandarínur! Það er nú bara svo einfalt finnst mér...![]()
Svo ég vaði nú úr einu yfir í annað þá má ég til með að segja ykkur frá pínulítið skondnu atviki sem ég þurfti því miður að vera vitni af þegar ég sat í mestu þægindum inná bókasafni Menntaskólans í Kópavogi í gær þegar ég var að læra. Svona af því fólk er nú jafn misjafnt og það er margt þá mætti þarna gaur og settist við borðið hliðina á mér. Alltígóðu með það öllum frjálst að læra þarna .. neinei minn kveikti á tölvunni og setti þræðina í eyrun á sér ( headsettið ) og fór að horfa á einhverja mynd með músatali..Þess má geta að þetta var grjón og þið vitið hvernig grjón tala...það allavega heyrist eins og músatal þegar það heyrist svona lágt í gegnum headsett... Þið sem skiljið ekkert hvert ég er að fara núna það er bara ykkar missir ! En eníveis þá var hann þarna að horfa á þessa mynd og drekka kókið sitt, og var ALLTAF og þá meina ég alltaf að sjúga upp í nefið svona ógeðslega ...eins ógeðslega og þið getið ímyndað ykkur! Og þess á milli sem hann var að kyngja horinu þá fékk hann sér kóksopa til að skola þessu svona smekklega niður. Frábært. Fyrir utan það hvað þetta sjúgauppínefið hljóð pirraði mig mikið þá tók hann uppá því að ropa í hvert einasta skipti sem hann var búin að fá sér sopa af hor-kókinu sínu. Excellent. Einmitt sú truflun sem ég þarf þegar ég er að skrifa ritgerð ! Heyrðu alltígóðu með þetta , ég reyndi að láta þetta ekki trufla mig og það tókst svona ágætlega þegar ég einbeitti mér við það. Neinei svo kom að því ! Þegar kókið var búið og ekkert til að skola með niður lengur þá sat grjónið þarna voða hress og horfði á músatalsmyndina sína og ég bjóst við svona Loka ropi bara til að enda kókið með stæl, heyrðu þá kom það! Grjónið tók sig til og prumpaði svona svakalega...alveg svona mörg prump. Oooooog þá var mér nóg boðið og leit yfir á borðið hans og reyndi að sýna honum með andlissvipnum mínum hvað mér þætti hann ógeeeeeððslegur neinei haldið að Herra Grjóni hafi ekki bara setið ennþá sem fastast og horft á myndina sína með þræðina í eyrunum. Eins og ekkert sé eðlilegra en að freta bara svona fyrir framan hvern sem er inná bókasafni. Mér ofbauð. Ég vissi nú að fólk og menning væri misjöfn en eitt er víst að ef þetta eru siðareglur einhversstaðar þá held ég að ég ætli bara að búa á Íslandi það sem eftir er ! :)
......Núna ætla ég að fara koma mér í það að gera eitthvað annað ! Ég vona að þið hafið haft gagn og gaman af þessari færslu! Og það væri nú ekki verra að skilja eftir sig komment hérna niðri svona til þess að sjá hverja ég hef glatt ! ![]()
P.s. 20 dagar í nafla alheimsins...Ég tel !
Kveðja Grjóna-Petra
Steindautt dæmi ?
Allavega, þá er þetta fínasta í fréttum héðan frá höfuðstaðnum. Skólinn er ekki að gera góða hluti með endalausum verkefnum og vitleysu. KSÍ-Lokahófið var síðasta föstudag þar sem maður skellti sér í kjól og var gella.is, braaand new
Reyndar allt vitlaust eftir þetta hóf yfir því að Hólmfríður í KR hafi verið valin best. Og eikkað verið að tala um að leikmenn í deildinni hafi hópað sig saman um að kjósa ekki Margréti Láru og verið að senda email og sms um það. Frekar leiðinleg umræða fyrir þær tvær, sérstaklega Fríðu þar sem maður er ekki valin bestur í deildinni á hverjum degi og hún fær engan vegin að njóta titilsins. Til að halda öllum góðum hefði verið málið bara að vera með tvo bikara og láta þær báða fá verðlaun, en þannig var það ekki og bara ein vann..þó þær eigi það báðar skilið! Finnst mér að minnsta kosti. Báðar frábærir leikmenn svo að ég trúi ekki öðru en að þessi kosning hafi verið mjög tæp og ég get engan vegin trúað því að einhver hafi ekki kosið hana sem þeim þótti best! Heldur hafi verið að fara eftir einhverjum emailum eða smsum sem "eiga" að hafa verið send en engin veit neitt um! Allavega er það mjög barnalegt
Riðlarnir í framhaldskolamótinu voru spilaðir um helgina þar sem við í MK komumst áfram svo að stefnan er sett á Akureyri á föstudaginn til að keppa í úrslitunum...vona að það eigi eftir að vera skemmtileg helgi! Að taka smá Road - Trip á þetta og kynna greifamatinn fyrir Rósu !! haha
Allavega ef þið hafið ekki gert það þá skuluð þið sækja ykkur penna núna og bæta því við á listann yfir þá hluti sem þið ætlið að gera áður en þið deyjið !!
Annars er voða lítið í fréttum...Ef ykkur vantar aukavinnu þá er laus staða hér á heimili mínu við að taka til. Mjög eftirsóknarvert starf og borgað í ást og umhyggju, ásamt smá vott af virðingu!! Held að enginn ætti að láta þetta tækifæri framhjá sér fara
Jæja ég held ég segi þetta gott í þetta skiptið! Skelli kannski inn myndum frá helginni hérna við tækifæri svo verið á tánum...þar sem þið eruð svo gríðarlegir áhangendur þessarar síðu
Þangað til næst!
-Petra Lind
Góð Speki
1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskarsverðlaunin á síðasta ári.
Hvernig gekk þér?
Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins. Þetta eru
ekki annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.En klappið
deyr út.Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og
skírteinin eru grafin með eigendum sínum.
Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:
1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.
Auðveldara?
Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir, sem
hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin.
Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli.
Já fínt, já sæll
Búið að vera pínu mikið að gera í skólanum undanfarið, fullt af prófum og verkefnum sem fylgja því að önnin sé hálfnuð! Reyndar voru þemadagar á mánudag og þriðjudag svo að það var mjög fínt, sofa smá út og fara bara í sund og svona á skólatíma
Svo var lokahóf Breiðabliks líka haldið um síðustu helgi það var mjög skemmtilegt..skelli kannski inn örfáuum myndum þaðan hér á eftir ...Eurobandið var að spila, þau voru voða hress!
Annars er ég eitthvað voða tóm í hausnum hérna, er búin að horfa á bloggið í svona 10 mín og veit ekkert hvað ég á að skrifa. Hendi inn nokkrum myndum hérna frá því um helgina
Þangað til nææææst!

Ég, Elsa og Hekla ferskar á leiðinni að kaupa Pulsu haha

Bibba Bjarna og ég með gripina okkar..

Íris, Harpa, Arndís og Rósa hressar hérna í einhverjum gleraugnaleik :)

Herreee guuud..parteeeey

Svo klárlega með´etta hérna...
